SKILMÁLAR

Greiðslufyrirkomulag
Tekið er á móti greiðslum með kreditkortum í gegnum öruggt greiðslusvæði þar sem kortanúmer eru dulkóðuð. Tekið skal fram að Volkano.is geymir ekki né tekur á móti kortanúmerum, allar slíkar upplýsingar fara í gegnum öruggt greiðslusvæði hjá viðurkenndum þjónustuaðila.
 
Afgreiðsla á vörum
Eftir að viðskiptavinur hefur gert og gengið frá pöntun á Volkano.is fær hann og Volkano staðfestingu um pöntunina á tölvupósti. Venjulegur afhendingarferill er 5-7 virkir dagar nema að annað sé tekið fram við lýsingu á vöru.  Allar pantanir eru sendar með Íslandspósti. Ef vara kemst inn um lúgu er hún send sem óskráð bréf annars sem pakki. Pósturinn ber pakka í hús á milli klukkan 17-22 á kvöldin. Ef enginn er heima, sendir pósturinn tilkynningu um að varan sé á næsta pósthúsi. Það er mikilvægt að heimilsfang sé rétt skráð og sá sem aðili sem er skráður á heimilisfang sé einnig merktur á lúgu/póstkassa. Ef svo er ekki, ber Volkano ekki ábyrgð ef pantanir komast ekki til skila. Sumstaðar á landinu er ekki möguleiki á heimsendingu og þarf að sækja pakka á pósthús.
 
Vöruskil
Almennur skilafrestur á vörum eru 14 dagar og er hægt að skila vörum gegn framvísun reiknings/pöntun. Almennur skilafrestur miðast við að varan sé óopnuð og í upprunalegum umbúðum. Viðskiptavinur ber sjálfur ábyrgð á því að koma vörunni til okkar á sinn kostnað. Endurgreiðsla á vörum sem uppfylla skilyrðin hér að framan getur tekið 2-3 virka daga.  Útsöluvörum er ekki hægt að skila. Ef um gallaða vöru er að ræða þurfum við að fá gölluðu vöruna í hendur svo hægt sé að afhenda nýja vöru. Við áskiljum okkur rétt að skipta gölluðum vörum út með nýrri.
 
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
 
Almennt um netverslunina
 Hægt að finna það HÉR
   
Trúnaður (Öryggisskilmálar)
Tekið er á móti greiðslum kredit og debitkorta í gegnum öruggt greiðslusvæði þar sem kortanúmer eru dulkóðuð. Tekið skal fram að Volkano geymir ekki né tekur á móti kortanúmerum, allar slíkar upplýsingar fara í gegnum öruggt greiðslusvæði hjá viðurkenndum þjónustuaðilaUpplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
  
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur